Til baka
28 febrúar 2025
Umsóknarfrestur um veiðileyfi á hreindýr

Umsóknafrestur um veiðileyfi á hreindýr rennur út á miðnætti á mánudaginn 3. mars. Hægt er að sækja um leyfi í gegnum þjónustugátt Náttúruverndarstofnunar og fólki bent á að til að umsókn sé tekin gild þurfa umsækjendur að ganga úr skugga um að hafa hreindýraheimild á veiðikortinu sínu. Til að fá hreindýraheimild á veiðikortið þarf umsækjandi að vera með B-skotvopnaréttindi. Hafi umsækjandi ekki hreindýraheimild á veiðikorti sínu þarf veiðimaður aðskila inn staðfestingu á B-skotvopnaréttindum. Hægt er að skila staðfestingu B-réttinda í formi ljósmyndar af skotvopnaleyfi gegnum þjónustugáttina meðan umsóknafrestur veiðileyfa er virkur.
Tímasetning á útdrætti hreindýraleyfa verður auglýst fljótlega.
Upptaka af útdrætti á hreindýraleyfum