Til baka

4 mars 2025

Ragnhildur Sigurðardóttir ráðin þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs

Ragnhildur Sigurðardóttir hefur verið ráðin nýr þjóðgarðsvörður Snæfellsjökulsþjóðgarðs í stað Hákonar Ásgeirssonar sem hefur hafið störf sem sviðsstjóri Stjórn- og verndarsviðs hjá Náttúruverndarstofnun.  

Ragnhildur hefur frá árinu 2014 gegnt starfi framkvæmdastjóra Svæðisgarðsins á Snæfellsnesi. Svæðisgarðurinn er fjölþætt samstarf sveitarfélaga, fyrirtækja, félaga og samtaka á svæði sem myndar samstæða landslags- og menningarlega heild. Ragnhildur hefur búið á Snæfellsnesi í 29 ár og þekkir því vel til. Ragnhildur er með meistaragráðu í umhverfisfræðum og náttúruvernd og hefur meðal annars starfað að mörgum verkefnum með þjóðgarðinum.  

Hún hefur störf 1.mars nk. Við hlökkum til að fá hana til starfa og bjóðum Ragnhildi velkomna!