Til baka
19 febrúar 2025
Opnunarhátíð Náttúruverndarstofnunar verður 27. febrúar næstkomandi

Náttúruverndarstofnun tók til starfa þann 1. janúar síðastliðinn. Af því tilefni verður haldin opnunarhátíð klukkan 14:00, fimmtudaginn 27. febrúar næstkomandi, í Hvolnum á Hvolsvelli.
Hér má sjá dagskrá viðburðarins:
Ísólfur Gylfi Pálmason fer með fundarstjórn á viðburðinum.
Ávarp ráðherra: Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku-, og loftslagsráðherra
Tónlistaratriði: Tríó. Maríanna Másdóttir, söngur, Gísli Stefánsson, söngur, Glódís Margrét Guðmundsdóttir, píanó
Kynning á merki Náttúruverndarstofnunar: Stefanía Ragnarsdóttir, fræðslufulltrúi
Kynningarmyndband um merkið
Ávarp forstjóra: Sigrún Ágústsdóttir, forstjóri Náttúruverndarstofnunar
Kynningarmynd um Náttúruverndarstofnun
Tónlistaratriði: Steingrímur Ari Helgason, nemandi í Tónlistarskóla Rangæinga
Ávarp sveitastjóra Rangárþings eystra: Anton Kári Halldórsson
Tónlistaratriði: Tríó. Maríanna Másdóttir, söngur, Gísli Stefánsson, söngur, Glódís Margrét Guðmundsdóttir, píanó
Veitingar að loknum atriðum og erindum.
Hlekkur á viðburð: https://fb.me/e/F8dl6BLx5
Hlökkum til að sjá þig,
Starfsfólk Náttúruverndarstofnunar