Til baka

26 febrúar 2025

50 ár frá friðlýsingu Hornstranda

Þann 27. febrúar 1975 voru Hornstrandir, Aðalvík, Rekavík bak Látur og Fljótavík ásamt hluta Jökulfjarða friðlýst sem friðland. Friðlandið er 581 ferkílómetrar að stærð og eitt af aðaleinkennum friðlandsins er hve afskekkt það er og lítið mótað af umsvifum og ágangi manna. Nú er svæðinu stýrt sem óbyggðu víðerni, enda uppfyllir svæðið öll viðmið til að falla í þann flokk. En svæði í þessum flokki er skilgreind sem víðfeðm óbyggða- eða eyðibyggðasvæði sem eru lítt eða ekkert röskuð af hálfu manna og hafa haldið sínum náttúrulegu einkennum. Þau eiga að bjóða upp á tæifæri til að upplifa einveru, eftir að komið er inn á svæðið, með hljóðlátum og lítið truflandi feðravenjum. Þau geta verð opin fyrir gesti sem eru tilbúnir til að til að ferðast á eigin vegum, fótgangandi eða með bátum. Gestir svæðisins eru þeir sem búa yfir reynslu og búnaði til að takast á við það veðurfar og aðstæður sem eru að finna á þessum svæðum, án utanaðkomandi aðstoðar.

Markmið friðlðýsingarinnar á Hornströndum er að vernda lífríki, jarðminjar og menningarminjar svæðisins en friðlandið hefur hátt verndargildi bæði á íslenskan og alþjóðlegan mælikvarða, þar sem svæðið er mikilvægt búsvæði fyrir fjölda fuglategunda, ekki síst sjófugla, auk þess sem friðlandið er eitt mikilvægasta búsvæði refa í Evrópu.

Image

Náttúruverndarstofnun hefur umsjón með svæðinu en eignarhald friðlandsins er dreift, þar sem um er að ræða land í eigu fyrrum íbúa og afkomenda þeirra svo og annara einkaaðila, samtaka og ríkis. Frá stofnun friðlandsins hafa landeigendur átt 3 fulltrúa í samráðsnefnd um málefni friðlandsins, Hornstrandanefnd. Mikið og gott samstarf er við heimamenn og ferðaþjónustu á svæðinu sem er mjög mikilvægt því svæðið er stórt og í mörg horn að líta. Heimamenn hafa oftar en ekki verið þátttakendur í hinum ýmsu verkefnum sem verið er að vinna að innan svæðis og taka virkan þátt í verndun friðlandsins.

Image

Gestakomur hafa ávallt verið yfir sumartímann en undanfarin ár hefur þeim fjölgað mikið sem heimsækja svæðið sem og ferðatíminn hefur lengst. Nú allra síðustu ár hafa um og yfir 10.000 gestir heimsótt svæðið yfir sumartímann.

Framan af komu landverðir í eftirlit 1 – 2 sinnum á sumri en með auknum gestakomum hefur landvarsla aukist jafnt og þétt og er nú svo komið að tveir landverðir eru inn á svæðinu nánast allt sumarið frá byrjun júní og fram í september. Þeirra helstu verkefni er að fræða gesti um svæðið, verndun þess og hvernig sé best að fara um það. Sjá um að svæðið sé hreint ásamt því að viðhalda þeim innviðum sem þar er að finna. Nú eru 14 skilgreindir tjaldstaðir innan friðlandsins og á tveimur þeirra er að finna aðsetur landvarða, í Búðinni á Hesteyri og í Höfn Hornvík.

Image

Til að halda upp á þennan merka áfanga mun Náttúruverndarstofnun ásamt Hornstrandanefnd standa fyrir málþingi um friðland á Hornströndum í maí næst komandi Vonumst við til að sjá sem flesta velunnara friðlandsins á málþinginu í vor sem og inn á friðlandi í sumar.